Tilkynningar
Fæðuofnæmi og eldun ofnæmisfæðis 2021- fjarnámStarfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn
Endurskoðuð handbók fyrir grunnskólamötuneyti komin út
Fæðuofnæmi og eldun ofnæmisfæðis - fjarnám
Starfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á fæðuofnæmi og fæðuóþoli, á einkennum, algengi og afleiðingum fæðuofnæmis og fæðuóþols. Í framhaldi er farið yfir úrræði og leiðbeiningar í fæðismeðferð og matreiðslu.
Mjólk í Nudie Snacks Protein Balls – Salted Carmel BrownieHeilsa hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Nudie Snacks Protein Balls – Salted Carmel Brownie Við innra eftirlit uppgötvaðist að varan inniheldur ofnæmis- og óþolsvaldinn mjólks án þess að það komi fram á umbúðum. Neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir mjólkurvörum eru varaðir við að neyta vörunnar. Varan er örugg þeim sem ekki hafa óþol eða ofnæmi fyrir mjólkurvörum. Heilsa vill biðja viðskiptavini innilegrar velvirðingar á þessum leiðu mistökum.
Gleðileg jól 2020Kæri félagsmaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands
Við, stjórn og starfsmaður félagsins óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og farsæls komandi árs og vonum að árið 2021 verði ykkur gott í alla staði. Nú er ótrúlegt ár senn á enda og við fögnum hátíð ljóss og friðar á fremur óhefðbundinn hátt en samt er markmiðið það sama og áður að eiga gæða stundir með okkar nánustu og njóta þessa einstaka tíma sem í hönd fer. Kærar kveðjur Astma og ofnæmisfélag Íslands |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO