Tilkynningar
Styrkur 2020
Astma- og Ofnæmisfélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki í Styrktarsjóð félagsins sem veitt verður úr í samræmi við tilgang sjóðsins sem er að:
* stuðla að aukinni þekkingu á astma- og ofnæmissjúkdómum. * styrkja lækna og aðra sem leita sér fagþekkingar á ofangreindum sjúkdómum og kunnáttu í meðferð þeirra með framhaldsnámi eða rannsóknum á þessu sviði. Umsóknin þarf að innihalda upplýsingar um umsækjandann, í hverju verkefnið felst, áætlaðan kostnað, tímaramma og stutta greinargerð um gildi verkefnissins fyrir Astma- og ofnæmissjúka á Íslandi. Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir, formaður Astma og ofnæmisfélags Íslands í síma 898-8798 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO