Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1

Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands vegna 2018

Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands vegna 2018

Síðumúla 6, 9. Maí 2019

Mætt: Björn Ólafur Hallgrímsson, Fríða Rún Þórðardóttir, Dagný Erna Lárusdóttir, Sólveig Hildur Björnsdóttir, Selma Árnadóttir, Guðrún Björg Birgisdóttir, Auður Marteinsdóttir, Tonie Gertin Sörensen.

Dagskrá aðalfundar

1. Formaður setur fundinn.

Formaður bauð fundarmenn velkomna á aðalfund AO 2018. Því næst var gengið til dagskrár.

2. Kjör fundarstjóra og skipun fundarritara.

Formaður lagði til að Björn Ólafur Hallgrímsson yrði fundarstjóri og samþykkti fundurinn það samhljóða, einnig Björn Ólafur sjálfur.

Fríða Rún Þórðardóttir var kjörin fundarritari.

Fundarstjóri þakkaði traustið og gekk til dagskrár. Hann úrskurðaði aðalfundinn löglegan þar sem löglega hafi verið til hans boðað. Rætt var hvort að auglýsa þyrfti aðalfundinn á fleiri miðlum til að mynda í Fréttablaðinu.

3. Fundargerð

Farið var yfir fundargerð síðasta aðalfundar sem var samþykkt samhljóða.

4. Skýrsla stjórnar

Formaður flutti skýrslu stjórnar og stiklaði á stóru um verkefni liðins árs en skýrslan (3 bls.) hafði verið lögð fram fyrir fundinn.

5. Skýrsla gjaldkera

Gjaldkeri fór yfir rekstrarreikning, efnahagsreikning, skuldir og eigið fé félagsins vegna ársins 2017. Enn gengur vel að afla styrkja sem er grundvöllur fyrir því að ýmiss verkefni félagsins fái brautargengi. Ánægjulegt var að sýna fram á áframhaldandi áheit frá Reykjavíkur Maraþoni þó má segja að þar séu aukin tækifæri. Nokkrar umræður voru um reikningana og að gera þurfi smávægilegar leiðréttingar er snúa að því hvar tilteknir þættir eru bókfærðir. Mun gjaldkeri um sjá leiðréttingarnar.

6. Skýrslur nefnda og sjóða

Engar skýrslur voru fluttar. En málefnum Styrktarsjóðsins var frestað og verða afgreidd síðar.

7. Umræður um skýrslur. Ársreikningar bornir upp.

Sjá hér að ofan umræðu um ársreikninga og var hann samþykktur með þeim breytingum sem tilgreindar eru hér að ofan.

Skýrsla AO var samþykkt samhljóða.

8. Ákvörðun félagsgjalda sbr. 6. gr.

Formaður lagði fram tillögu um að félagsgjaldinu yrði haldið óbreyttu. Var það samþykkt.

9. Lagabreytingar

Engar lagabreytingar lágu fyrir.

10. Formannskjör

Fundarstjóri stakk upp á sitjandi formanni, Fríðu Rún Þórðardóttur, sem áframhaldandi formann AO. Fundurinn tók undir og samþykkti tillöguna samhljóða. Fríða Rún þakkaði traustið.

11. Kjör tveggja meðstjórnenda.

Sólveig Hildur Björnsdóttir og Selma Árnadóttir voru áfram kjörnar til tveggja ára. Þær Sif Hauksdóttur og Guðrún Björg Birgisdóttur eiga eftir ár af sinni stjórnarsetu.

12. Kjör þriggja varamanna

Auður Marteinsdóttir, Guðrún Ósk Guðjónsdóttir og Jóhanna Eyrún Torfadóttir voru kjörnir varamenn. Til eins árs.

13. Kjör tveggja skoðunarmanna og eins til vara.

Núverandi skoðunarmenn eru Stefanía Sigurðardóttir og Hanna Regína Guttormsdóttir, Ari Axelsson til vara. Þau voru áfram kjörin til þeirra starfa.

14. Stjórnarkjör Styrktarsjóðs.

Samkvæmt lögum Styrktarsjóðsins er formaður AO sjálfkjörinn í formannssæti sjóðsins, það embætti helst því óbreytt. Stjórnina skipa nú auk formanns AO, Dagný Erna gjaldkeri, Hanna Regína ritari, María Ingibjörg og Telma Grímsdóttir meðstjórnendur Varamenn er Björn Ólafur, Björn Árdal og Tonie. Aðalfundi styrktarsjóðs var frestað til 26. október kl. 17:00.

15. Aðrar kosningar

Ekki var þörf á öðrum kosningum.

16. Önnur mál.

Engin önnur mál voru á dagskrá.

 

Formaður þakkaði fundarstjóra, Birni Ólafi, fyrir fundarstjórnina og færði Birni Ólafi og Dagnýju Ernu Lárusdóttur fallegar Orkedur sem þakklætisvottur fyrir vel unnin störf og hollustu við félagið í tugi ára.

 

Formaður þakkaði fundarmönnum fyrir mætinguna og málefnalegan fund.

 

Fundi slitið 18:45

 

Fundargerð ritaði Fríða Rún Þórðardóttir

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO