Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1

Aðalfundur Astma og ofnæmisfélags Íslands 30. apríl 2014

Mættir: Fríða Rún Þórðardóttir, Hólmfríður Ólafsdóttir, Selma Árnadóttir, Björn Ó. Hallgrímsson, Stefanía Sigurðardóttir, Jóhanna Garðarsdóttir, María Ingibjörg Gunnbjörnsdóttir, Dagný Erna Lárusdóttir, Hanna Guttormsdóttir.

1.Fundur settur.

Björn Ólafur setur fundinn.

2.Kjör fundarstjóra og skipun fundarritara.

Björn er kosin fundastjóri og Hólmfríður fundarritar.

3.Fundargerð síðasta aðalfundar borin undir atkvæði.

Fundargerðin er samþykkt.

4.Skýrsla stjórnar.

Fríða Rún Þórðardóttir segir frá starfi AO á síðasta ári. 

Sjá meðfylgjandi skýrslu stjórnar Astma og ofnæmisfélags Íslands 2013-2014

5.Skýrsla gjaldkera.

Gjaldkeri lagði fram ársskýrslu. AO blaðið sem unnið var af stjórnarmeðlimum kom út á núlli. Engar tekjur af matreiðslubókinni Kræsingar.

6.Styrktarsjóður

Málefni styrktarsjóðs tekið fyrir á næsta fundi.

7.Umræður um skýrslur. Ársreikningar bornir

Ársreikningar bornir upp og þeir samþykktir.

8.Ákvörðuð félagsgjöld sbr. 6 gr.

Félagsgjöldin eru núna 2.500 og var ákveðið að halda þeim óbreyttu.

9.Umræður og atkvæðagreiðsla um tillögur til lagabreytinga

Engar tillögur.

10.Formannskjör
Fríða Rún Þórðardóttir endurkjörin formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.

11.Kjör tveggja meðstjórnenda.
Tveir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára:
Hólmfríður Ólafsdóttir og Selma Árnadóttir kosnar til tveggja ára. Jóhanna Garðarsdóttir kosin til eins árs.

12.Kjör þriggja varamanna. Dagný Erna, Björn Ó. og María Ingibjörg kosnir varamenn áfram.

13.Kjör tveggja endurskoðenda og eins til vara.

Stefanía Sigurðardóttir og Hanna Regína Guttormsdóttir kosnir endurskoðendur og Ari Alexandersson kosin varamaður.

14.Stjórnarkjör Styrktarsjóðs.
Fríða Rún formaður, Dagný gjaldkeri, Hanna ritari, María I. og Telma Grímsdóttir meðstjórnandi. Varamenn eru Björn Ó., Björn Árdal og Tonie.

15.Aðrar kosningar.
Kjör tveggja endurskoðenda og eins til vara fyrir Styrktarsjóðinn: Davíð Gíslason og Ari Alexandersson kosnir endurskoðendur og Hanna Regína Guttormsdóttir kosin varamaður.

16. Önnur mál.
Ákveðið var að halda stjórnarfundi fyrsta fimmtudag í mánuði.

Fundi slitið.

Fundarritari: Hólmfríður Ólafsdóttir.

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO