Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1

Samning við World Class

SÍBS hefur undirritað samning við World Class um kaup félagsmanna SÍBS á aðgangskortum hjá World Class. 

Félagsmönnum SÍBS býðst að kaupa heilsuræktarkort í World Class gegn staðfestingu á félagsaðild. 

Verð árskorta og 3 mánaðakorta er með 20% afslætti frá staðgreiðsluverði.

Öryrkjar og ellilífeyrisþegar (67 ára og eldri) fá 30%. 

Samningur þessi gildir frá 24. júní 2010. 

Með góðri félagskveðju,f.h. Félagsráðs SÍBS

Páll Haraldsson

marathon 2010

Ágæti félagi .

Félagsráð Síbs vill vekja athygli aðildarfélaganna á mögulegri áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka árið 2010 sjá www.marathon.is
Líkt og undanfarin ár gefst þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis. Á eftirfarandi tengli má fá leiðbeiningar um hvernig hægt er að skrá sig sem góðgerðahlaupara http://www.marathon.is/godgerdamal en í stuttu máli virkar ferlið þannig að þegar hlaupari skráir sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á www.marathon.is býðst honum í skrefi 4 af 8 að skrá sig sem góðgerðahlaupara fyrir ákveðið góðgerðafélag. Haka þarf í reitinn „Já, ég vil láta heita á mig á vef marathon.is” til að hægt sé að velja góðgerðafélag í fellilistanum. Nafn hlaupara, vegalengd og valið góðgerðarfélag mun þá birtast á marathon.is og hver sem er getur heitið á hlauparann upphæð að eigin vali.
Einnig má finna leiðbeiningar um hvernig heita má á hlaupara en það geta allir heitið á þá hlaupara sem valið hafa að hlaupa til góðs í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka http://www.marathon.is/godgerdamal  Þá er hægt að velja flipana: heita á hlaupara, hlaupa til góðs eða góðgerðarfélög eftir því sem við á.

Astma- og ofnæmisfélagið (AO) er aðili að SÍBS.  Það væri mjög ánægjulegt ef stór hópur hlaupara skráir sig sem SÍBS hlaupara eða AO hlaupara safnar þannig áheitum.

Ef spurningar vakna varðandi ofangreint er hægt að hafa samband í síma Reykjavíkurmaraþons: 535-3700.

Með góðri félagskveðju,f.h. Félagsráðs SÍBS

Fríða Rún Þórðardóttir, Helgi Hróðmarsson og Páll Haraldsson

Rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara á ÍNN

Astmalyf og áreynsluastmi,

rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara á ÍNN

Þann 17. maí næstkomandi hefjast á sjónvarpsstöðinni ÍNN röð sjónvarpsþátta þar sem fjallað er um lyf og tengd málefni. Lyfjafræðingar og Lyfjastofnun standa að gerð þáttanna sem byggðir eru upp á þann máta að tekið er fyrir ákveðið þema og unnið út frá því, eitt af þemunum er astmi.

Ákveðið var að fá einstakling með astma í einn þáttinn, einstakling sem hefur upplifað að lyfin hafi skipt sköpum hvað varðar daglegt líf og tómstundir.

Í þættinum sem sýndur verður 31. maí kl. 20 verður rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara, sem fékk áreynsluastma árið 2003 en hefur samt náð að stunda sínar æfingar af fullum krafti og keppir enn með landsliði Íslands í frjálsum íþróttum auk þess að keppa á Evrópu- og heimsmeistaramótum í sínum aldursflokki með góðum árangri. Fríða Rún þurfti töluverðan aðlögunatíma áður en lyfin fóru að virka eins og þau áttu að gera en þolinmæði og góð ráð lækna fóru loks að skila árangri og stöðugleika.

Heimasíða ÍNN er http://www.inntv.is/ og þar má fylgjast með dagskránni

Nýtt Tímarit komin út

 [linkur í pdf]

[pdf:AO_2010-1_low]

Spá um öskufall frá Eyjafjallajökli

Veðurstofan birtir spá um öskufall:

Spá um öskufall frá Eyjafjallajökli

Eyjafjallajökull 17.apríl 2010. Ljósmyndari: Grétar Þórisson

Aðalfundur 21.apríl 2010

AO

Flokkar

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO