Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
17. Maí 2010

Rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara á ÍNN

Astmalyf og áreynsluastmi,

rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara á ÍNN

Þann 17. maí næstkomandi hefjast á sjónvarpsstöðinni ÍNN röð sjónvarpsþátta þar sem fjallað er um lyf og tengd málefni. Lyfjafræðingar og Lyfjastofnun standa að gerð þáttanna sem byggðir eru upp á þann máta að tekið er fyrir ákveðið þema og unnið út frá því, eitt af þemunum er astmi.

Ákveðið var að fá einstakling með astma í einn þáttinn, einstakling sem hefur upplifað að lyfin hafi skipt sköpum hvað varðar daglegt líf og tómstundir.

Í þættinum sem sýndur verður 31. maí kl. 20 verður rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara, sem fékk áreynsluastma árið 2003 en hefur samt náð að stunda sínar æfingar af fullum krafti og keppir enn með landsliði Íslands í frjálsum íþróttum auk þess að keppa á Evrópu- og heimsmeistaramótum í sínum aldursflokki með góðum árangri. Fríða Rún þurfti töluverðan aðlögunatíma áður en lyfin fóru að virka eins og þau áttu að gera en þolinmæði og góð ráð lækna fóru loks að skila árangri og stöðugleika.

Heimasíða ÍNN er http://www.inntv.is/ og þar má fylgjast með dagskránni

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO