Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
06. Des 2021

Námskeið valdeflingar- og leiðtogaþjálfun ÖBÍ fyrir 18-35 ára

AO er eitt af 41 aðildarfélagi Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) og hefur það marga kosti í för með sér, m.a. tækifæri til að taka þátt í ýmisskonar námskeiðum. 
Nú er komið að því sem margir hafa beðið eftir en valdeflingar- og leiðtogaþjálfun ÖBÍ fyrir 18-35 ára mun fara fram í febrúar 2022 nánar tiltekið þriðjudagana 1. 8. 15. og 22. Febrúar kl. 18:30-20:30
 
valdefling og leiðtogaþjálfun öbi og kvan
Af því tilefni óskar AO eftir beiðnum frá foreldrum barna sem eru í félaginu eða öðrum félagsmönnum sínum á aldrinum 18-35 ára um þátttöku á námskeiðinu sér að kostnaðarlausu.

Námskeiðið er frábært tækifæri fyrir ungt fólk sem vill styrkja sig persónulega, læra markvissa markmiðasetningu, bæta leiðtogahæfni sína, hitta annað ungt fólk í sambærilegri stöðu og sem einnig hefur áhuga á félagsstörfum.  

Námskeiðið verður haldið af KVAN og allar helstu upplýsingar er að finna í meðfylgjandi hlekk: https://kvan.is/events/valdefling-og-leidtogathjalfun-obi-og-kvan/ 

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO