Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
26. Apr 2021

Fæðuofnæmi og eldun ofnæmisfæðis 2021- fjarnám

Starfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn
Tími
 
Hefst 4. maí kl: 14:00
 
Lengd
 
4 klukkustundir
 
Kennarar
 
Fríða Rún Þórðardóttir
Selma Árnadóttir
 
Verð

Fullt verð 4.000 kr.-  
Verð til aðila IÐUNNAR 2.500 kr.-
 
Tengiliður

boern-mad

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á fæðuofnæmi og fæðuóþoli, á einkennum, algengi og afleiðingum fæðuofnæmis og fæðuóþols. Í framhaldi er farið yfir úrræði og leiðbeiningar í fæðismeðferð og matreiðslu. Námskeiðið skiptist í tvo hluta.

Í fyrsta hlutanum er farið yfir skilgreiningar, helstu fæðuofnæmis- og óþolsvalda, einkenni fæðuóþols og ofnæmis, um greiningar á ofnæmi og óþoli, um fæðuofnæmi og næringu og fl. Kennari er Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.

Í seinni hlutanum er fjallað um úrræði í fæðismeðferð og matreiðslu fyrir þau sem eru með fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol, um merkingu matvæla og vöruval og þætti sem hafa þarf að hafa í huga við matreiðslu fyrir fólk með fæðuofnæmi og fl. Kennari er Selma Árnadóttir, varformaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.         

Skráning hér 



 

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO