Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
18. Feb 2021

Fæðuofnæmi og eldun ofnæmisfæðis - fjarnám

food allergy

Starfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn 

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á fæðuofnæmi og fæðuóþoli, á einkennum, algengi og afleiðingum fæðuofnæmis og fæðuóþols. Í framhaldi er farið yfir úrræði og leiðbeiningar í fæðismeðferð og matreiðslu.

Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Í fyrsta hlutanum er farið yfir skilgreiningar, helstu fæðuofnæmis- og óþolsvalda, einkenni fæðuóþols og ofnæmis, um greiningar á ofnæmi og óþoli, um fæðuofnæmi og næringu og fl. Kennari er Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og formaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands.

Í seinni hlutanum er fjallað um úrræði í fæðismeðferð og matreiðslu fyrir þau sem eru með fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol, um merkingu matvæla og vöruval og þætti sem hafa þarf að hafa í huga við matreiðslu fyrir fólk með fæðuofnæmi og fl. Kennari er Selma Árnadóttir, varaformaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands. 

 Skráning hér 

Dagsetning: 

25. feb. kl: 14:00-16:00 og 3. mars kl: 14:00-16:00

Kennari: 

Fríða Rún Þórðardóttir  og Selma Árnadóttir

Verð:

4.000 kr.-, Verð til aðila IÐUNNAR 2.500 kr.-

Tengiliður: 

Ólafur Jónsson netfang:  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO