Tilkynningar
Leiðbeiningar frá sóttvarnalækni
Sóttvarnalæknir beinir því til félagasamtaka og félaga sjúklinga og/eða aðstandenda að koma eftirfarandi skilaboðum um smitvarnir vegna kórónaveiru (COVID-19) á framfæri til þeirra sem málið varðar: Gripið hefur verið til margvíslegra varúðarráðstafana að undanförnu til að hefta útbreiðslu COVID-19 kórónaveirunnar hér á landi. Veirunnar varð fyrst vart í Kína í lok desember síðastliðnum og varð þar að faraldri. Síðan hefur hún breiðst nokkuð hratt til annarra landa og hér á landi hefur greinst smit hjá nokkrum einstaklingum sem allir höfðu verið í útlöndum. Einkenni þeirra sem veikjast í kjölfar smits líkjast helst inflúensusýkingu, þ.e. hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir og þreyta. Flestir sem smitast finna aðeins fyrir vægum einkennum og jafna sig fljótt. Ekki verður þó horft fram hjá því að veiran getur valdið alvarlegum veikindum og í verstu tilfellum reynst lífshættuleg. Þess vegna er mjög mikilvægt að allir leggist á eitt til að hefta útbreiðslu og fylgi í einu og öllu leiðbeiningum heilbrigðisyfirvalda um sóttvarnir. Heilbrigðisyfirvöld beita margvíslegum leiðum til að koma upplýsingum og leiðbeiningum til almennings á framfæri sem víðast. Með þessu bréfi er óskað eftir liðsinni ykkar sem það fáið við að koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri við félagsmenn ykkar og skjólstæðinga: · Gæta vel að hreinlæti, þvo hendur reglulega með sápu og nota handspritt. Forðast snertingu við augu, nef og munn. · Hósta og hnerra í krepptan olnboga eða í pappír þegar um kvefeinkenni er að ræða. · Forðast náið samneyti við einstaklinga með hósta og almenn kvefeinkenni. · Sýna aðgát í umgengni við algenga snertifleti á fjölförnum stöðum, s.s. handrið, lyftuhnappa, snertiskjái, greiðsluposa og hurðahúna. · Sleppa handaböndum og faðmlögum og heilsa fremur með brosi. Meðfylgjandi er einnig leiðbeiningar á veggspjaldi sem má prenta út og hengja upp. Ef einstaklingur finnur fyrir veikindum og óttast að um smit af völdum kórónaveiru sé að ræða á hann að hringja í símanúmerið 1700 til að fá nánari upplýsingar. Ekki mæta á bráðamóttöku eða á heilsugæslustöð nema að fengnum ráðleggingum í síma. Á vef embættis landlæknis www.landlaeknir.is eru birtar ítarlegar leiðbeiningar til almennings og nýjustu upplýsingar af kórónaveirunni eftir því sem þörf krefur. Samhæfingarstöð almannavarna |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO