Tilkynningar
Námskeið ætlað foreldrum og aðstandendum barna með fæðuofnæmi
HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT? 1. og 7. nóvember Kl. 16:30-19:30 Astma- og ofnæmisfélag Íslands stendur fyrir námskeiði um eldun ofnæmisfæðis fyrir foreldra, forráðamenn og aðstandendur barna og ungmenna með fæðuofnæmi. Námskeiðið fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi og verður haldið tvö síðdegi á virkum degi. Námskeiðsgjaldi verður haldið í lágmarki eða aðeins 5.000 kr. Markmiðin Megin markmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess, ýmsar öryggisráðstafanir í daglegu lífi og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því að fara yfir hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna og ungmenna. Einnig verður farið yfir hugmyndir að afmælisveitingum og nesti. Markhópur Foreldrar, forráðamenn og aðstandendur, jafnvel eldri systkyni barna og ungmenna með fæðuofnæmi. Námskeiðið getur einnig gagnast ungmennum með fæðuofnæmi.
Bóklegt 3 klst með stuttu hléi. *Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat Fríða Rún Kaffihlé *Öryggi og ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum með fæðuofnæmi. Tillögur að mat án ofnæmisvalda. Umræður Selma Verklegt: 3 - 3 ½ klst *Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, einnig börn og ungmenni Margrét með fæðuofnæmi og -óþol. Umræður og smakk Kennarar Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO. Margrét S. Sigbjörnsdóttir, kennari og umsjónaraðili með matartæknanámi við Menntaskólann í Kópavogi. Annað Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verður til sölu. Nánari upplýsingar veitir á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Skráning, skráningarfrestur og námskeiðsgjald. Skráning fer fram hér: https://goo.gl/forms/Zyut6Twv6zmHgsQO2 Skráningarfrestur er til og með 30/10-17. Greiða þarf 5000 kr. staðfestingargjald við skráningu sem jafnframt er námskeiðsgjaldið og er hráefnisgjald innifalið: Bankareikningur 0113-05-570194, Kennitala 5904740109 Senda kvittun á: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið að greiða eða sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tilgreinið fyrir hvern var greitt á. Fríða Rún Þórðardóttir Formaður AO This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 898-8798 Astma- og ofnæmisfélag Íslands Síðumúla 6, 108 Reykjavík Veff.: www.ao.is Netf.: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
|
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO