Tilkynningar
Reykjavíkurmaraþon 2017
Kæri AO félagi og aðrir viðtakendur
Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) er á lista þeirra góðgerðarfélaga sem hlaupið er fyrir í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer í þrítugasta og fjórða sinn laugardaginn 19. ágúst næstkomandi. Undanfarin ár hafa félagar í AO og aðstandendur einstaklinga með astma og ofnæmi hlaupið til góðs og safnað verulegum fjárhæðum sem hafa komið sér vel í starfi félagsins. Í fyrra náðu AO félagar að safna meiru en nokkru sinni áður og vorum við afar þakklát fyrir það. Þeir sem hlaupa eru þó ekki einir í liðinu okkar því hlaupararnir hafa fengið hvatningu og áheit frá öðrum félögum og velunurum sem hafa mætt við hlaupaleiðina og hvatt hlauparana áfram. Þannig leggja margir sitt lóð á vogarskálina. Við hvetjum einnig einstaklinga til að hreyfa sig og huga að heilsunni á þann máta. Það væri gaman að heyra í þeim sem að ætla að hlaupa fyrir okkur í ár, vinsamlegast sendu póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og við svörum um hæl.
Gangi þér/ykkur vel Með bestu kveðjum, Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO