Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
13. Maí 2016

Almannatryggingar og starfsgetumat: Nýtt kerfi – fyrir hvern?

Kynning

Málþing ÖBÍ um almannatryggingar og starfsgetumat þann 25.maí 2016, Grand Hótel (Gulleigur) Reykjavík.

skyrsla

Á haustmánuðum 2013 skipaði Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra nefnd um endurskoðun laga um almannatryggingar.

Verkefni nefndarinnar var annars vegar að fjalla um kerfi starfsgetumats sem taki við af kerfi örorkumats og sveigjanleg starfslok. Hins vegar var verkefni nefndarinnar að fjalla um fjárhæðir almannatrygginga til aldraðra og öryrkja. 

Í byrjun árs 2014 setti ÖBÍ af stað vinnuhóp til að kortleggja hugmyndir um starfsgetumat og hvernig því gæti verið sem best háttað.  Vinnuhópurinn skrifaði skýrsluna Virkt samfélag: Tillögur ÖBÍ að heildstæðu kerfi starfsgetumats og framfærslu á grundvelli þess. Í skýrslunni eru að finna helstu áherslur og tillögur bandalagsins að nýju starfsgetumatskerfi og greiðslum á grundvelli þess. Skýrslan var innlegg ÖBÍ í starf nefndarinnar og var hún kynnt þa

Nefnd um endurskoðun laga um almannatryggingar lauk störfum í febrúar sl. og skilaði skýrslu sem finna má á vef velferðarráðuneytisins.  ÖBÍ skilaði séráliti ásamt greinagerð sem einnig er hægt að finna á vef ráðuneytsins. r. Auk þess var skýrslan kynnt fyrir ráðherra félags- og húsnæðismála og aðstoðarmanni.

https://www.velferdarraduneyti.is/media/skyrslur2016/Skyrsla_nefndar_um_endurskodun_laga_um_almannatryggingar_01032016.pdf

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur boðað að frumvarp sem byggir á tillögum úr skýrslu nefndar um endurskoðun laga um almannatryggingar sé í undirbúningi hjá ráðuneytinu og verði lagt fyrir Alþingi fyrir næstu kosningar.

Til að bregða ljósi á áætlanir stjórnvalda og þær tillögur sem nefndin um almannatryggingar lagði fram, ásamt því að kynna áherslur ÖBÍ og þá gagnrýni sem kom fram í séráliti og greinargerð bandalagsins um tillögur nefndarinnar, þá verður boðað til málþings miðvikudaginn 25. maí kl. 13-17 á Grand hóteli.

Enn fremur munu nokkrir einstaklingar frá aðildarfélögum ÖBÍ;  Landssamtökunum Þroskahjálp og ÁTAKI vera með erindi, þar sem þeir beina sjónum sínum að því hvernig tillögurnar  hafa áhrif á möguleika fólks með mismunandi skerðingar til atvinnuþáttöku og framfærslu.

Dagskrá verður kynnt fljótlega.

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO