Tilkynningar
1. maí göngu ÖBI
Kæru félagar, Við höfum nú stofnað viðburð á Facebook varðandi 1. maí gönguna okkar en hann má finna hér: https://www.facebook.com/events/624404444403816/ Meðfylgjandi er opnu mynd og vil ég hvetja ykkur til að nota þessa opnumynd fyrir félagið ykkar og/eða ykkur sjálf á Facebook fram yfir 1. maí. Þá þætti mér einnig vænt um ef þið mynduð deila viðburðinum og bjóða vinum ykkar á viðburðinn.
Við ætlum að hittast kl 11:00 í súpu hér í Sigtúni 42 á skrifstofu ÖBÍ þann 1. maí. Þeir sem ekki komast í súpuna hitta okkur þá við við Hlemm kl. 13. Slagorð okkar í ár eru: Fæði, klæði, húsnæði fyrir alla!
Við hvetjum ykkur sem flest til að mæta og bjóðið með vinum og fjölskyldu – börn eru sérstaklega velkomin. Við munu dreifa buffum í ár líkt og síðastliðin ár, þau verða með litríkum barnateikningum af fæði, klæði og húsnæði líkt og sést á mynd viðburðarins.
Krafan okkar í ár er, líkt og slagorðin gefa til kynna, að allir eigi klæði, nóg að bíta og brenna og hafi þak yfir höfuðið.
6.100 börn á Íslandi líða skort og eiga einungis eitt skópar sem passar, fái hvorki kjöt né grænmetismáltið daglega eða búa í viðunandi húsnæði. Þetta eru þættir sem okkur þykja ólíðandi í íslensku samfélagi.
Börn tekjulágra foreldra og börn sem eiga foreldra sem eru örorkulífeyrisþegar búa við mestan skort. Ef þú vilt mótmæla þessu ástandi – ef þú vilt breyta þessu, gakktu þá eða rúllaðu með okkur þann 1. maí.
Okkur vantar einnig sjálfboðaliða sem eru til í að dreifa buffum og eða skiptast á að bera forgönguborðann í göngunni sem er létt og skemmtilegt verk Endilega látið Sigríði Hönnu vita ef þið getið tekið þátt í því verkefni, netfang hennar er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest!
Baráttukveðjur, Ellen Calmon
Formaður / Chairman Öryrkjabandalag Íslands / The Organisation of Disabled in Iceland
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
|
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO