Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
07. Mar 2016

Fæðuofnæmisnámskeið á Egilsstöðum á föstudaginn 11.mars. Enn eru nokkur laus pláss

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?

Brunch MGD

 

Námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum Astma- og ofnæmisfélags Íslands (AO).

 

Markmiðin

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna.

 

Markhópur

Matráðir í eldhúsum í leik-, grunn- og framhaldsskólum, á sjúkrahúsum og öldrunarstofnunum. Einnig heimilisfræðikennarar, starfsmenn og stjórnendur í skólum.

 

Dagskrá

Föstudagur 11. mars:       Bóklegt 12:30 – 14:30, hlé, Verklegt 15:00 – 19:00

 

Bóklegt 2 ½ klst

*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat                Fríða Rún          

*Öryggi og ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum með fæðuofnæmi.           Selma

   Umræður

Verklegt: 4 klst

*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, einnig börn og ungmenni með ofnæmi og óþol.         Margrét

   Umræður og smakk 

 

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst með því að fylgja þessari vefslóð en þar er boðið upp á að merkja við  valmöguleikan   http://goo.gl/forms/7SyJqBvx6p

 

Greiða þarf 8000 kr. staðfestingargjald fyrir 9. mars nk: 

Bankareikningur 0113-05-570194, Kennitala 5904740109

Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið að greiða eða sendið póst á  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tilgreinið fyrir hvern var greitt á.


Námskeiðsgjald.

Kostnaður: 23.000 kr

 

Kennarar
Selma Árnadóttir, stjórnarmaður í AO og móðir ofnæmisbarns.

Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO.

Margrét S. Sigbjörnsdóttirkennari og umsjónaraðili með matartæknanemum við Menntaskólann í Kópavogi.

 

Annað

Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verða til sölu

Ekki er komið á hreint hvar kennslan mun fara fram en upplýsingar um það munu berast þegar ákveðið hefur verið hvort námskeiðið fer fram og dagsetningar hafa verið staðfestar.

 

Fríða Rún Þórðardóttir 

Formaður AO                   

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.        

898-8798

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO