Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
03. Mar 2016

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?

 

Námskeið í Menntaskólanum í Kópavogi

Námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum Astma- og ofnæmisfélags Íslands (AO) 12. og 13. apríl 2016.

Markmiðin

boern-mad

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna.

Markhópur

Menntaskólanum í Kópavogi

Matráðir í eldhúsum í leik-, grunn- og framhaldsskólum, á sjúkrahúsum og öldrun
arstofnunum. Einnig heimilisfræðikennarar, starfsmenn og stjórnendur í skólum.

 

Þriðjudagur 12. apríl, kl. 14:30 – 17:00

Bóklegt 2 ½ klst

*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat      Fríða Rún                  

 Kaffihlé

*Öryggi og ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum með fæðuofnæmi.               Selma

   Umræður

Miðvikudagur 13. apríl, kl. 14:00 – 18:00

Verklegt: 4 klst

food allergy


*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, einnig börn og ungmenni með ofnæmi og óþol.               Margrét             

  Umræður og smakk


Skráning, skráningarfrestur, fjöldi og námskeiðsgjald.

Skráning fer fram hér: http://goo.gl/forms/I5tj0w6oh6

Skráningarfrestur er til og með 5. apríl.

Greiða þarf 8000 kr. staðfestingargjald við skráningu: 

Bankareikningur 0113-05-570194,

Kennitala 5904740109

Senda kvittun á: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið a

ð greiða eða sendið póst á  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  og tilgreinið fyrir hvern var greitt á.

Forsendur þess að námskeiðið verði haldið er að næg þátttaka fáist. Lágmarksfjöldi er 15 manns.

 

Kostnaður: 23.000 kr


Kennarar

Selma Árnadóttir, stjórnarmaður í AO og móðir ofnæmisbarns.

Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO.

Margrét S. Sigbjörnsdóttir, kennari og umsjónaraðili með matartæknanemum við Menntaskólann í Kópavogi.


Annað

Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verða til sölu.

Nánari upplýsingar veitir:

Fríða Rún Þórðardóttir        

Formaður AO            

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

898-8798

 

 

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO