26.01.2026
Ágætu félagsmenn
Við þökkum afar góðar undirtektir við málþingið sem félagið hélt 15. janúar sl. Um 50 manns mættu á staðinn eða hlustuðu í streymi og við náðum markmiðinu með góðum erindum og þátttöku, góðri samveru og spjalli.
Á málþinginu, sem við munum gera skil í næsta tímariti, voru fræðandi erindi flutt og við veittum styrk til Rebekku Sigrúnar D. Lynch úr Minningarsjóði Hallbjörns Kristinssonar en sjóðurinn er ætlaður til að styðja við læknanema í sérfræðinámi í ofnæmis- og ónæmisfræðum. Auk þessa opnuðum við nýju AO heimasíðuna og frumsýndum myndbönd um fæðuofnæmi sem styrktar sjóður um Bráða fæðuofnæmi styrkti og unnin voru af SKOT.