UM ASTMA-OG OFNÆMISFÉLAGIÐ.
Astma- og ofnæmisfélagið var stofnað 1974 til að berjast fyrir hagsmunum þeirra sem eru með astma og ofnæmi.
Astma- og ofnæmisfélagið leggur áherslu á fræðslu og þjónustu við félagsmenn sína. Heldur fræðslufundi, gefur út fréttablöð og bæklinga.
Skrifstofa félagsins er í Síðumúla 6 (í húsi SÍBS) og sinnir starfsmaður félagsins erindum þar einn dag í viku (mánudögum kl 9-15) .
Félagið talar máli sjúklinga með astma og ofnæmi við yfirvöld heilbrigðismála, kennslumála og aðra áhrifahópa í þjóðfélaginu.
Styrktarsjóður félagsins styrkir rannsóknir og starfsþjálfun heilbrigðisstarfsfólks á sviði astma og ofnæmis.
Félagið er deild í Samtökum íslenskra berkla-og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og aðili að norrænum samtökum sjúklinga með astma og ofnæmi.
Félagsgjald fyrir árið 2009-2010 er kr 2.000-, (Ath. hálft gjald fyrir börn, ellilífeyrisþega og öryrkja).
Átt þú samleið með þeim sem berjast fyrir hagsmunum fólks með astma og ofnæmi? Ef svo er skráðu þig þá í félagið!
Þú þarft aðeins að senda okkur:
- nafn,
- heimilisfang,
- kennitölu og
- netfang
- Endilega nefnðu áhugasvið (ef vill), t.d. astmi, fæðuofnæmi, dýraofnæmi, latexofnæmi osfrv þá sendum við fræðslubæklingar til þín.
LÖG ASTMA-OG OFNÆMISFÉLAGSINS.